Það er einfalt og þægilegt að versla hjá okkur. Þú velur vöru, setur í körfu, velur greiðslufyrirkomulag og pöntunin er afgreidd. Í kjölfarið færðu kvittun fyrir vörukaupunum í tölvupósti og þar með er kominn á samningur á milli þín og Adidas. Sé vara uppseld verður haft samband við þig hið fyrsta og þér boðin önnur vara eða endurgreiðsla. Adidas áskilur sér rétt til að afgreiða ekki pantanir, t.d. ef vara er vitlaust verðmerkt eða uppseld, og til að breyta verðum og vöruframboði. Viðskiptavinur fær þá endurgreitt eða getur valið sér aðra vöru

 

UPPLÝSINGAR UM SELJANDA

Seljandi er Cintamani ehf Kennitala: 550419-0680 VSK nr: 137198, til húsa að Austurhrauni 3, 210 Garðabæ.

SKILAFRESTUR

Viðskiptavinir okkar hafa 14 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að þeir hafi ekki notað vöruna, hún sé ekki sérsniðin þörfum kaupanda, henni sé skilað í góðu lagi í óuppteknum upprunalegum umbúðum og að greiðslukvittun fylgi með. Niðurtalning hefst þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Varan er endurgreidd að fullu innan 14 daga (ef greitt var með korti) eftir að henni er skilað ef ofangreind skilyrði eru uppfyllt. Netgiro er endurgreitt innan 14 daga frá kaupum, eftir það er inneign.

Áður en skil eða skipti eiga sér stað þarftu smella á skilað og skipt og skrá vöruskilabeiðni

Þú getur komið í Faxafeni 7 og hitt okkur í glæsilegri verslun sem við vorum að opna.
Þú getur einnig farið með vöruna á pósthúsið og sent til okkar þér að kostnaðarlausu, ath að láta pöntunarupplýsingar fylgja með.
Við verðum svo í sambandi við þig með framhaldið.

ekki hika við að heyra í okkur ef eitthvað er óljóst. netverslun@adidas.is


 

VERÐ

Öll verð í netversluninni eru í íslenskum krónum og með virðisaukaskatti (VSK) og birt með fyrirvara um innsláttarvillur. Verð í netverslun getur breyst án fyrirvara t.d. vegna rangra verðupplýsinga, útsölu eða rangrar skráningar samanber ákvæði þess efnis hér að framan. Öll verð sem eru á sléttri tölu t.d 5.000 eða 5.500 eru outlet vörur sem eru á afslætti (40-50%) þannig að engir afsláttarkóðar virka á þær vörur.

Greiðslumöguleikar

Seljandi notar örugga greiðslugátt frá Borgun. Hægt er að greiða með öllum helstu greiðslukortum og debetkrotum , geiðslum frá Netgíró.

EIGNARRÉTTARFYRIRVARI

Seldar vörur eru eign seljanda þar til kaupandi hefur greitt kaupverðið að fullu

TRÚNAÐUR

Seljandi heitir viðskiptavinum fullum trúnaði um allar upplýsingar sem þeir gefa upp í tengslum við viðskiptin. Sjá nánari upplýsingar um meðferð persónuupplýsinga hér.

LAGAÁKVÆÐI

Um skilmála þessa gilda ákvæði laga um húsgöngu- og fjarsölu nr. 96/1992, laga um lausafjárkaup nr. 50/2000 sem og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003, eftir því sem við getur átt . Niðurtalning á öllum frestum sem nefndir eru í lögum nr. 96/1992 hefst þegar móttaka vöru á sér stað.

HÖFUNDARRÉTTUR

Allt efni á www.adidas.is texti, grafík, lógó og myndir, eru eign Adidas Global og Sportmenn ehf.

VARNARÞING

Þessi samningur er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Skilmálar þessir gilda frá 20. maí 2011.

Nánari upplýsingar

Ef þú þarft nánari upplýsingar, sendu okkur þá fyrirspurn á netverslun@adidas.is og við svörum þér eins fljótt og auðið er.

Við erum hætt með sportpunktakerfið þannig að ekki er hægt að nýta punktana sem þú fékkst við kaup hér áður fyrr.