Lesa frétt

11.12.2009

JABULANI

Á föstudaginn síðastliðinn í Höfðaborg kynnti adidas "JABULANI" opinbera keppnisboltann fyrir Heimsmeistaramótið í fótbolta árið 2010 í Suður Afríku.
Hin nýþróaða "Grip 'n' Groove" tækni færir bestu leikmönnum heimsins bolta með ótrúlega stöðugt flug og fullkomið grip í öllum aðstæðum. Boltinn er aðeins samansettur með átta glænýjum hitalímdum 3-D flötum sem eru í fyrsta skipti mótaðir hnattlaga, boltinn er því fullkomlega hnöttóttur og nákvæmari en áður.

"JABULANI" er tekið úr isiZulu, einu af 11 tungumálum Suður Afríku sem um 25% íbúanna tala, og þýðir "fögnuður"; bókstaflega "að fagna". "JABULANI" verður í aðalhlutverki þegar Afríka fagnar því að Heimsmeistaramótið í fótbolta verður haldið þar í fyrsta skipti.

Á boltanum, þeim ellefta sem adidas býr til fyrir FIFA heimsmeistaramót, eru 11 rendur í 11 litum sem tákna 11 leikmenn í liði, 11 ættbálka Suður Afríku og hin 11 tungumál Suður Afríku. Honum er ætlað að fanga eininguna í fjölbreytninni sem gerir Suður Afríku að einu fjölskrúðugasta landi Afríku. Hin litríka hönnun sameinar þá ótrúlega fjölbreytni landsins í samstillta einingu. Fjögur þríhyrningslaga form á hvítum bakgrunni ljá boltanum einstakt útlit með afrískum anda.

Keppnisboltinn fyrir HM 2010 skartar glænýrri og byltingarkenndri tækni. Átta 3-D hnattlaga mótaðir EVA og TPU fletir eru límdir saman og í sameiningu umlykja þeir innri hluta boltans. Niðurstaðan er kröftug eining sameinuð með fullkominni hnattlögun. Eftir fyrstu prófanirnar voru leikmenn um allan heim spenntir og lofuðu þeir mörgum mörkum með nýja boltanum.

Michael Ballack:     "Frábær, boltinn gerir nákvæmlega það sem ég vil."

Petr Cech:               "Þú finnur fyrir orkunni sem kemur í áttina að þér, líkt og byssuskot"

Frank Lampard:
    "Mjög sterkur bolti, gott að sparka í hann."

Kaká:                 "Fyrir mig er snertingin við boltann allra mikilvægust, hún er frábær með þessum bolta."


Grip 'n' Groove tæknin:


Loftrákir:

Loftrákirnar eru greinilegar á yfirborði boltans. Grip 'n' Groove tæknin umlykur allan boltann á þann hátt sem er best loftaflsfræðilega séð. Rákirnar veita boltanum flugeiginleika sem ekki hafa sést áður, það gerir boltann að stöðugasta og nákvæmasta adidas boltanum í sögunni. Þessi byltingarkennda tækni í "JABULANI" hefur verið staðfest í miklum samanburðarprófunum í Loughborough háskólanum í Englandi og í þrotlausum athugunum í vindgöngum í fótboltarannsóknarstofu adidas í Scheinfeld í Þýskalandi.

Grip:
Síðan að "gæsahúðar" yfirborði var kynnt til sögunnar fyrri síðasta Evrópumót landsliða hefur áferð nýja boltans fengið "andlitslyftingu". "JABULANI" er með framtíðarlega áferð með frábæru gripi með veitir leikmönnum fulla stjórn á boltanum í öllum aðstæðum.

adidas hefur alltaf unnið við þróun íþróttavara í samvinnu við fremsta íþróttafólk heimsins. Við prófanir á "JABULANI" naut adidas aðstoðar frá AC Milan, FC Bayern München, Orlando Pirates og Ajax Cape Town árið 2008. Það leiddi til þess að umbætur voru gerðar á yfirborði boltans sem og efnissamsetningunni. Þegar adidas nýtur aðstoðar frá leikmönnum mun það aðstoða við að færa markaðinum bestu fótboltavörurnar í framtíðinni.

adidas mun í framtíðinni halda áfram að notast við framúrskarandi tækni til að auka við forskot sitt sem fremsti framleiðandi fótboltavarnings og þar af leiðandi styrkja stöðu sína sem tákn fyrir háklassa íþróttavörur fyrir atvinnumenn sem og áhugamenn. adidas ætlar sér að afhjúpa enn byltingarkenndari nýjungar í keppnisboltum fyrir komandi keppnir UEFA, FIFA og CAF.
Þróunarteymi adidas hefur nú þegar hafist handa við að þróa nýjungar fyrir Heimsmeistarmótið í fótbolta árið 2014 í Brasilíu.