
adidas hefur framleitt Predator síðastliðin 17 ár og með þessari
útgáfu, þeirri 10. í röðinni, hefur adidas búið til “kraftmesta
fótboltaskó í heimi”.
Hlutverk skósins er að hámarka kraft, snúning og vald á knettinum. Til
að ná þessu fram hefur adidas fundið upp nýja tækni sérstaklega fyrir
þennan skó, með hjálp frá einum besta knattspyrnumanni heims fyrr og
síðar, Zinedine Zidane.
Predator_X – Zinedine Zidane
Þegar fyrrum besti knattspyrnumaður heims var spurður út í Predator_X hafði hann þetta að segja:
Eftir að hafa spilað í Predator skóm allan minn feril hef ég alltaf furðað mig á hinni ótrúlegu þróun í fótboltaskóm og hvað hver nýjung ber í skauti sér fyrir mig og minn leik.
Ég hef unnið með adidas við þróunina á Predator_X og með því að nýta mína reynslu og vöruþekkingu þeirra hefur okkur tekist að stíga næsta skref í skótækni fyrir fótboltaskó.
Auk þess að hafa notið reynslu og innsæis Zidane hefur skórinn verið settur í strangar prófanir með hjálp frá stærstu nöfnunum hjá adidas. Í kjölfarið má búast við því að sjá Steven Gerrard (ef hann verður leikfærl), Karim Benzema (sem skiptir úr adiPure II) og Michael Ballack leika í þessum skóm um komandi helgi.
Predator_X tækni
Kraftur

Glæný “Powerspine” hefur verið þróuð, byggð á hinni byltingarkenndu “fingersave” tækni sem er nú þegar notuð í sumum markmannshönskum frá adidas. "Powerspine" er staðsett í innri sóla skósins og dregur úr orkutapi þegar leikmenn spyrna knettinum með því að minnka sveigjanleikann í fremri hluta skósins.
Þessi orka færist yfir í boltann og í burt frá viðkvæmum liðböndum og beinum sem liggja efst í fætinum.
Eftir miklar prófanir hefur komið í ljós að Predator_X veitir 7% meiri skotkraft en gerðin þar á undan, Predator Powerswerve.
Snúningur

Að hjálpa leikmönnum að snúa boltanum hefur alltaf verið lykileiginleiki í Predator skónum. Nýtt efni er notað í Predator_X til að auka þetta enn frekar.
Predator hlutinn er blanda af gúmmíi og sílikoni, sem þýðir að hann er léttur en áhrifaríkur, og er staðsettur á "spyrnufleti" skósins.
Staðsetningunni á Predator hlutanum hefur verið breytt örlítið til að hámarka snúninginn sem leikmenn geta náð. Þessar breytingar hafa í för með sér aukinn snúning og virknin helst óbreytt í öllum veðrum og aðstæðum.
Vald á knettinum
Samkvæmt adidas þarf bilið á milli fótar leikmanns og efri hluta skósins að vera sem minnst til þess að hann hafi sem mest vald á kenttinum. Optifit tækni færir efnin í efri hlutanum eins nálægt fætinum og möguleiki er á.
Thermoform tækni hefur verið bætt við á hlið skósins og virkar eins og “minnisfrauð” sem gerir það að verkum að skórinn passar alltaf frábærlega.
Skórinn er gerður úr Taurus nautsleðri sem er veður- og rispufrítt en jafnframt mjög létt.
Predator_X verður í fyrstu fáanlegur í tveimur litum, hvítur með svörtu og gulu og svartur með rauðu og hvítu.