23.10.2009
Rakel vann hlaupafatnað
Í sumar var öllum þeim sem mátuðu Supernova hlaupaskó í Útilíf boðið uppá að skrá sig og eiga möguleika á að vinna Supernova Hlaupafatnað. Sú heppna heitir Rakel Jónsdóttir og í síðustu viku fékk hún vinninginn afhentan í verslun Útilífs í Kringlunni. Hún fékk Supernova Windstopper hlaupajakka og buxur ásamt síðerma Supernova bol svo hún geti hlaupið í allan vetur.
Rakel var í fimleikum og notar núna hlaup ásamt annarri líkamsrækt til þess að halda sér í formi. Við hjá adidas og Útilíf óskum Rakel til hamingju með vinninginn og vonum að fötin hjálpi henni að njóta hlaupanna enn frekar.
