25.6.2009
adidas og Meistaradeild EHF framlengja samninginn
Þessi nýji samningur á milli adidas og stærstu keppni félagsliða í Evrópu bæði í karla- og kvennaflokki gildir frá árinu 2009-2013. Frá stofnun Evrópska Handknattleikssambandsins árið 1991 hefur adidas spilað stórt hlutverk í þróuninni í keppni félagsliða og landsliða í evrópskum handbolta. Vinsældum Meistaradeildar EHF má að stórum hluta þakka adidas.
Það sem meðal annars felst í þessum nýja samningi er að allir 89 leikirnir í karlaflokki og allir 114 leikirnir í kvennaflokki verða áfram spilaðir með gula og bláa Stabil Champ boltanum sem er orðinn samheiti fyrir stærstu félagsliðakeppni EHF. Á miðjuhring hvers vallar í þessari keppni mun verða mynd af Stabil Champ boltanum ásamt adidas Performance merkinu.
Michael Riehl frá adidas segir, "Meistaradeild EHF sameinar bestu félagslið Evrópu og adidas er stolt að halda samstarfinu áfram við eina mest spennandi íþróttadeild í heiminum.
Framkvæmdastjóri markaðsmála hjá EHF, Peter Vargo undirstrikar mikilvægi samstarfsins við adidas. "Við erum ánægðir með framlengingu samstarfsins sem tryggir að handboltar í hæsta gæðaflokki verði notaðir í öllum leikjum Meistaradeildarinnar.
Forseti EHF, Tor Lian, fagnar samningnum og segir "adidas, samstarfsaðili EHF til margra ára, hefur stuðlað að jákvæðri þróun Meistaradeildar EHF. Sem skipuleggjandi kepnninnar er EHF mjög ánægt með framlengingu samstarfsins við leiðandi íþróttavöruframleiðandann adidas.
Á síðasta tímabili fékk Meistaradeild karla meira en 520.000 áhorfendur á leiki keppninnar. Á komandi tímabili (2009/2010) munu lið frá 25 löndum álfunnar hefja leik í karlaflokki en lið frá 22 löndum í kvennaflokki.