Lesa frétt

23.3.2009

adidas frumsýnir Finale Rome

adidas kynnti á dögunum boltann sem notaður verður í úrslítaleik Meistaradeildarinnar í Róm þann 27. maí, “Finale Rome”. Í annað skiptið í sögunni verður úrslitaleikur Meistaradeildarinnar leikinn í höfuðborg Ítalíu. Tvö bestu félagslið Evrópu munu etja þar kappi á leikvanginum Stadio Olimpico di Roma sem er stærsti leikvangur Ítalíu.

Hönnunin á adidas boltanum “Finale Rome” er byggð á hinum þekkta stjörnubolta Meistaradeildarinnar. Litirnir í nýja keppnisboltanum eru hinir þekktu litir Rómar, dökk vínrauður með gylltu í kringum stjörnurnar. Í hverri stjörnu er mósaík fígúrur sem tákna gildi íþrótta sem og Rómar, eins og hraða, samvinnu, réttlæti og kraft.

Líkt og “EUROPASS” keppnisboltinn sem leikið var með í Evrópukeppni landsliða síðastliðið sumar er “Finale Rome” með sama yfirborðið, PSC-TextureTM.
Hið nýja yfirborð boltans gefur leikmönnum tækifæri á að stjórna boltanum fullkomlega í öllum mögulegum aðstæðum. Hið byltingarkennda "PSC-TextureTM" (power, swerve control) er þróaðasta og fínasta áferð á ysta lagi sem völ er á. Hún tryggir ávallt besta mögulega gripið á milli boltans og skósins. Þessi áferð er hin svokallaða "gæsahúð" sem er á boltanum.

Reynsla adidas í framleiðslu fótbolta ber af í heiminum. adidas hefur búið til fótbolta síðan árið 1963 og er nú leiðandi í heiminum í framleiðslu þeirra, alltaf með nýjustu tæknina. Leikið hefur verið með adidas bolta í öllum helstu keppnum á vegum UEFA og FIFA frá árinu 1970 og frá árinu 2008 mun verða leikið með adidas bolta í Afríkumótinu sem er skipulagt af Knattspyrnusambandi Afríku.