Forsíða

17.12.2009

Supernova Glide hlaupaskór í jólapakkann


Í ár hafa Neytendasamtökin valið 6 jólagjafir sem óhætt er að mæla með. Ein af þeim jólagjöfum eru adidas Supernova Glide hlaupaskór.

11.12.2009

JABULANI

Á föstudaginn síðastliðinn í Höfðaborg kynnti adidas "JABULANI" opinbera keppnisboltann fyrir Heimsmeistaramótið í fótbolta árið 2010 í Suður Afríku.
Hin nýþróaða "Grip 'n' Groove" tækni færir bestu leikmönnum heimsins bolta með ótrúlega stöðugt flug og fullkomið grip í öllum aðstæðum. Boltinn er aðeins samansettur með átta glænýjum hitalímdum 3-D flötum sem eru í fyrsta skipti mótaðir hnattlaga, boltinn er því fullkomlega hnöttóttur og nákvæmari en áður.

29.10.2009

Predator_X



adidas hefur framleitt Predator síðastliðin 17 ár og með þessari útgáfu, þeirri 10. í röðinni, hefur adidas búið til  “kraftmesta fótboltaskó í heimi”.

Hlutverk skósins er að hámarka kraft, snúning og vald á knettinum. Til að ná þessu fram hefur adidas fundið upp nýja tækni sérstaklega fyrir þennan skó, með hjálp frá einum besta knattspyrnumanni heims fyrr og síðar, Zinedine Zidane.

23.10.2009

Rakel vann hlaupafatnað


Í sumar var öllum þeim sem mátuðu Supernova hlaupaskó í Útilíf boðið uppá að skrá sig og eiga möguleika á að vinna Supernova Hlaupafatnað. Sú heppna heitir Rakel Jónsdóttir og í síðustu viku fékk hún vinninginn afhentan í verslun Útilífs í Kringlunni.

18.8.2009

adidas fagnar merkustu augnablikunum í 60 ára sögu þess


Þegar Adi Dassler skráði fyrirtækið sitt "Adi Dassler: adidas Schuhfabrik", þann 18. ágúst 1949, grunaði hann ekki að 60 árum síðar væri vörumerkið með rendurnar þrjár eitt þekktasta og árangursríkasta vörumerkið í heiminum. Á þessu ári fagnar adidas 60 ára afmæli sínu með því að líta á merkustu augnablikin í sögu þess.

2.7.2009

Fáðu aukinn kraft í æfingarnar þínar með nýrri ilmefnatækni - haust/vetur '09 línan í adilibria


Stundum eru þessar vikulegu æfingar í ræktinni eða útiæfingar erfiðari en áður, sérstaklega þegar hvatningin er lítil og þú leitar eftir þessari smá aukaorku til að koma þér í gegnum æfinguna.
Nýja adidas adilibria línan sem kemur í búðir í ágúst skartar hinni glænýju Skintex® tækni sem inniheldur örvandi og hvetjandi nauðsynlegar olíur og E-vítamín krafta sem losa ilmandi efnisþætti sína þegar núningur verður á æfingunni sem örvar örhylki sem eru ofin í efnið. Þetta hjálpar til við að endurvekja skilningarvitin og örvar efnaskiptin, þetta gefur þér þennan smá aukaorku til að klára æfinguna.

25.6.2009

adidas og Meistaradeild EHF framlengja samninginn


Þessi nýji samningur á milli adidas og stærstu keppni félagsliða í Evrópu bæði í karla- og kvennaflokki gildir frá árinu 2009-2013. Frá stofnun Evrópska Handknattleikssambandsins árið 1991 hefur adidas spilað stórt hlutverk í þróuninni í keppni félagsliða og landsliða í evrópskum handbolta. Vinsældum Meistaradeildar EHF má að stórum hluta þakka adidas.

28.5.2009

Fætur Messi fá annað húðlag - adidas SprintSkin


adidas kynnir í samvinnu við Lionel Messi og Emmanuel Adebayor nýja F50i fótboltaskóinn. Brautryðjandi tækni og framúrskarandi hönnun gera F50i að hinum fullkomna fótboltaskó fyrir þá leikmenn sem geta ráðið úrslitum leiks með snilli sinni og veitt liðsfélögum sínum innblástur.

23.3.2009

adidas.TV



Fyrir stuttu opnaði adidas nýja vefsíðu, adidas.TV.

Þar má finna margs konar myndbönd sem skarta helstu stjörnum adidas. Þar má til dæmis nefna David Beckham, Steven Gerrard, Frank Lampard, Lionel Messi, Dwight Howard og Kevin Garnett.


23.3.2009

adidas frumsýnir Finale Rome



adidas kynnti á dögunum boltann sem notaður verður í úrslítaleik Meistaradeildarinnar í Róm þann 27. maí, “Finale Rome”. Í annað skiptið í sögunni verður úrslitaleikur Meistaradeildarinnar leikinn í höfuðborg Ítalíu. Tvö bestu félagslið Evrópu munu etja þar kappi á leikvanginum Stadio Olimpico di Roma sem er stærsti leikvangur Ítalíu.